Sjálandsskóli í Garðabæ tók til starfa haustið 2005. Sjálandsskóli er einsetinn grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Nærhverfi skólans er: Sjáland, Ásar, Grundir og Nes og markast það að Hafnarfjarðarvegi í suður, Gálgahrauni í vestur, Arnarnesvogi í norður og Kópavogi í austur. Skipulag skólans er í samræmi við grunnskólalög og aðalnámskrá.

Á starfstíma nemenda opnar skólabyggingin klukkan 7.30 en skóladagurinn hefst kl. 8:15. Kennslu lýkur hjá öllum nemendum klukkan 14:05. Eftir að skóladegi lýkur býðst nemendum lengd viðvera sem er starfrækt af tómstundaheimili skólans, Sælukoti.

Hver nemandi hefur umsjónarkennara sem fylgist náið með námi, líðan og þroska hans. Umsjónarkennari er tengiliður milli heimila og skóla og ber ábyrgð á því samstarfi af hálfu skólans.

Í vetur eru 246 nemendur í Sjálandsskóla og 50 í Alþjóðaskólanum sem er starfræktur í húsnæði skólans.


Skólastjóri er  Edda Björg Sigurðardóttir

Aðstoðarskólastjóri er Sesselja Þóra Gunnarsdóttir

Netfang skólans er sjalandsskoli@sjalandsskoli.is


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi