Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Samkomulag í Sjálandsskóla

03.09.2008
Samkomulag í Sjálandsskóla Nýverið undirrituðu kennarar Sjálandsskóla og fulltrúar Garðabær samkomulag um vinnutilhögun kennara skólans. Markmið þessa samkomulags er auka gæði og skilvirkni í starfi skólans; að tryggja enn frekar vinnuumhverfi þar sem kennarar vinna saman sem hópur fagmanna að undirbúningi, framkvæmd og mati skólastarfs, nemendum, starfsmönnum og skólastarfinu í heild sinni til heilla.

Þetta samkomulag tekur mið af starfsáherslum Sjálandsskóla. Grunnskólinn hefur á liðinum áratugum verið að þróast frá kennslustofnun í lærdómsstofnun þannig að nemandinn beri meiri ábyrgð á námi sínu, að hann læri að læra. Nýjar áherslur í skólastarfi, breytt skiplag þess og lögboðnar skyldur hafa kallað á breytingar á störfum kennara og heildarskilgreiningu á vinnutíma yfir skólaárið.

Hugmyndafræði Sjálandsskóla í Garðabæ hefur þetta m.a. að leiðarljósi. Sjálandsskóli er opinn skóli sem leggur áherslu á einstaklingsmiðað skólastarf. Námið byggir á fjölbreyttu hópastarfi og einstaklingsvinnu. Öflugt samstarf kennarahópsins er forsenda þess að skólastarf af þessum toga gangi upp.

Reynsla kennara í Sjálandsskóla hefur á liðnum árum sýnt að til þess að koma til móts við sameiginlegar þarfir nemenda, foreldra, starfshópsins og skólans er æskilegt að taka upp aðra vinnutímaskilgreiningu og vinnutilhögun en kjarasamningar kennara kveða á um og því var leitað eftir því að gera þetta samkomulag við bæjaryfirvöld í Garðabæ.
Til baka
English
Hafðu samband