Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fjölbreytt vika

25.09.2008
Það hefur mikið verið að gera í vikunni.  Foreldrar hafa streymt í skólann og tekið þátt í námskynningum.  Nemendur hafa einnig verið duglegir að leggja sitt af mörkum í þeim efnum.  8. bekkur fór í ævintýralega útilegu og gönguferð á Hengilsvæðið og gistu í Þrymheimum. Þau kynntust íslenskri veðráttu í hnotskurn, rigning, rok, snjókoma, slydda, sól. Krakkarnir stóðu sig mjög vel. Við fáum nánari fréttir af því síðar.
Til baka
English
Hafðu samband