Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Frábær íþróttadagur

15.05.2009
Frábær íþróttadagurÞetta var besta lífsreynsla sem ég hef upplifað sagði einn nemandi á miðjum íþróttadegi. Lífið lék við okkur í dag.  Íþróttakennarar voru búnir að skipuleggja frábær verkefni fyrir nemendur í allan dag.  Nemendur og kennarar skoppuðu út um grundir og í önnur bæjarfélög á hjólum og línuskautum.  Aðrir brunuðu á kajak um Arnarnesvoginn. Skólalóðin var einnig vel nýtt í skemmtilegum hreystiæfingum, ratleik, boltaleikjum og fleiru.  Nemendur voru mjög duglegir og hreyfðu sig á alla kanta í allan dag.  Ekki má gleyma að veðrið lék við okkur og voru sumir sem fóru í sjóinn hér í fjörunni og í Nauthólsvík. Sjá Myndir úr skólastarfinu.
Til baka
English
Hafðu samband