Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Tónlist 3.-4. bekkur

02.06.2009

 Nemendur í 3.-4. bekk unnu "rapp" lag  sem fjallar um örkina hans Nóa og farþega hennar. Verkefnið snýst um lengdargildi nótna og takta og að blanda saman ólíkum töktum. Hvert dýr sem kemur um borð í laginu gefur frá sér sitt hljóð sem er af ákveðinni lengd eða með ákveðnum takti. Undir lok lagsins blandast allir taktarnir og hljóðin saman og úr verður mikil hljóðsúpa sem Nói bindur að lokum enda á. Hver nemandi rappar ákveðinn hluta lagsins og á einnig eitt af dýrahljóðunum. Þetta verkefni er annars unnið eins og hitt, þ.e. í Pro tools og með því að einn taki upp í einu. Lögin finni þið undir verk nemenda hér til hægri og hérna.

Til baka
English
Hafðu samband