Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Klifið - námskeið fyrir börn og unglinga

03.02.2011
Klifið - námskeið fyrir börn og unglinga

Klifið býður upp á fjölbreytt námskeið á vorönn fyrir börn og unglinga í Garðabæ. Sem dæmi um námskeið má nefna: leiklistarnámskeið, myndlistarnámskeið, njósnanámskeið, eldflaugavísindi, skartgripagerð og margt fleira.

Klifið er fræðslusetur fyrir Garðbæinga og aðra áhugasama. Markmið Klifsins er að bjóða upp á fjölbreytt og skapandi námskeið fyrir börn og fullorðna sem auðga líf fólks.

Nánari upplýsingar má finna á vef Klifsins

Til baka
English
Hafðu samband