Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Stefnt á skíðaferð á miðvikudag

07.02.2011
Stefnt á skíðaferð á miðvikudag

Í þessari viku er fyrirhuguð dagsferð allra nemenda Sjálandsskóla í Bláfjöll. Markmið ferðarinnar er að kynna nemendum vetraríþróttir og verður þeim börnum sem þess óska veitt tilsögn á skíðum (ekki kennsla á bretti).

Nánari dagsetning verður tilkynnt með dagsfyrirvara með tilliti til veðurs. Eins og staðan er í dag horfum við til miðvikudagsins 9. febrúar.

Við hvetjum foreldra eindregið til að koma með okkur í ferðina. Þeir sem hyggjast koma og ætla að vera samferða okkur í rútunni, greiða kostnaðarverð. Mikilvægt er að þið látið umsjónarkennara vita á þriðjudag ef þið ætlið með í rútunni þannig að við getum gert viðeigandi ráðstafanir.

Nánari upplýsingar eru í bréfi sem sent var foreldrum um helgina.

Til baka
English
Hafðu samband