Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kór Sjálandsskóla

24.08.2011
Kór SjálandsskólaKór Sjálandsskóla er nú að hefja sitt fjórða starfsár. Kórinn er fyrir stráka og stelpur í 5. - 8. bekk. Í kórnum syngjum við fjölbreytt og skemmtileg lög og komum fram við ýmis tækifæri. 
Fastir liðir eru vor- og jólatónleikar en að auki verður farið í æfingarferð út úr bænum á vorönn. Vídeókvöld eru haldin reglulega þar sem við þjöppum hópnum saman, horfum á tónlistarkvikmynd og gæðum okkur á nammi. 

Skráning í kórinn er hafin og fer hún fram hjá mér og Soffíu ritara. Kórgjald fyrir veturinn er það sama og undanfarin ár eða 5.000 kr. fyrir báðar annirnar og fá foreldrar upplýsingar um greiðslufyrirkomulag eftir skráningu. Áhugasamir en óákveðnir nemendur eru velkomnir á eina æfingu til að kynna sér kórinn áður en ákvörðun um skráningu er tekin. 

Æfingar verða á miðvikudögum í vetur frá kl. 14:10 - 15:00 og verður sú fyrsta miðvikudaginn 31. ágúst. 

Með kveðju,
Ólafur Schram 
Tónmenntakennari

Til baka
English
Hafðu samband