Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

9.bekkur á Úlfljótsvatni

30.09.2011
9.bekkur á Úlfljótsvatni

Það voru hressir krakkar sem fóru í haustferð á Úlfljótsvatn nú á dögunum. Veðrið lék reyndar ekki við okkur en við höfðum að leiðarljósi þau orð að það sé enginn verri þó hann vökni. Hópurinn fór í gönguferð og í klifurturninn, prófaði vatnasafari og borðaði góðan mat. Um kvöldið var svo kvöldvaka þar sem m.a. var krýndur ásadansmeistari 9. bekkjar.

Myndir eru á myndasíðu 9.bekkjar

Til baka
English
Hafðu samband