Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sjálandsskóli fékk íslensku menntaverðlaunin

10.11.2011
Sjálandsskóli fékk íslensku menntaverðlaunin

Forseti Íslands afhenti í gærkvöldi, miðvikudaginn 9. nóvember 2011, Íslensku menntaverðlaunin fyrir árið 2011. Verðlaunin voru afhent við fjölmenna athöfn í Sjálandsskóla og hlaut skólinn verðlaun fyrir metnaðarfullt starf frá stofnum skólans. Við erum afar ánægð með þessa viðurkenningu og verður hún okkur hvatning til frekari uppbyggingar og nýsköpunar í framtíðinni.

Til hamingju starfsfólk og nemendur Sjálandsskóla!

Myndir frá verðlaunaafhendingunni

Í tilkynningu frá Menntamálaráðuneytinu segir:

Íslensku menntaverðlaunin, sem einkum eru bundin við grunnskólastarfið, eru veitt í fjórum flokkum:

Í flokknum Skóli sem sinnt hefur nýsköpun hlaut verðlaunin Sjálandsskóli í Garðabæ.
Sjálandsskóli tók til starfa haustið 2005. Frá upphafi voru starfinu sett afar metnaðarfull markmið. Áhersla var lögð á einstaklingsmiðað nám, fjölbreytta, sveigjanlega og lýðræðislega kennsluhætti, sköpun og tjáningu. Skólabyggingin sjálf er einstakt umhverfi utan um þetta metnaðarfulla starf. Kennslurýmin eru opin og áhersla lögð á að nemendur taki þátt í að skipuleggja námið. Þeir gera sér námsáætlanir í samstarfi við kennara sína og bera meiri ábyrgð á starfi sínu en víða gerist. Fáir skólar bjóða jafn fjölbreytt og áhugavert val á unglingastigi. Þar geta nemendur valið milli 50 ólíkra viðfangsefna; útieldun, ítölsk matargerð, skartgripagerð, kajakróður, franska, sagnfræði og fatahönnun eru dæmi um þetta fjölbreytta val sem stenst fyllilega samjöfnuð við það sem gerist í fjölmennustu skólunum.

Í flokknum Kennari sem skilað hefur merku ævistarfi hlaut verðlaunin Gunnlaugur Sigurðsson fyrrverandi skólastjóri í Garðaskóla í Garðabæ.
Gunnlaugur gegndi starfi skólastjóra í Garðaskóla í Garðabæ frá stofnun skólans árið 1966 og til ársins 2003. Á starfsferli sínum markaði hann djúp spor í skólasögu Garðabæjar, sem og landsins alls. Hann er hugsjónamaður og hreif samstarfsfólk, foreldra og nemendur með sér í framfara- og tilraunastörfum. Gunnlaugur er leiðtogi sem í krafti sannfæringar sinnar kom í verk fjölmörgum framsæknum nýjungum og breytingum sem í dag þykja eðlilegar í almennu skólastarfi.

Í flokknum Ungt fólk sem við upphaf kennsluferils síns hefur sýnt hæfileika hlaut verðlaunin Karólína Einarsdóttir kennari í Akurskóla í Reykjanesbæ.
Karólína lauk B.Ed. prófi frá Kennaraháskóla Íslands vorið 2007 og hóf kennslu þá um haustið við Akurskóla í Reykjanesbæ. Hún er hugmyndaríkur frumkvöðull í kennslu og hefur verið í forsvari fyrir þróunarverkefni á sviði útikennslu. Hún er verðugur fulltrúi ungra kennara sem leggja mikla alúð, fagmennsku og metnað í störf sín, nemendum, samstarfsmönnun og nærsamfélagi sínu til heilla.

Í flokknum Höfundar námsefnis hlutu Guðbjörg Pálsdóttir, Guðný Helga Gunnarsdóttir, Jónína Vala Kristinsdóttir og Guðrún Angantýsdóttir fyrir námsefnið Geisla.
Geisli er heiti á námsefnisflokki í stærðfræði fyrir miðstig grunnskóla. Í honum er reynt að beita fjölbreytilegri og nútímalegri nálgun á stærðfræðinám og beitingu stærðfræði í daglegu lífi. Þannig byggir framsetning efnis og verkefna fyrst og fremst á því að nemendur öðlist skilning á því sem þeir eru að fást við hverju sinni. Rík áhersla er lögð á að þeir skrái skipulega hjá sér þær leiðir sem þeir fara að úrlausnum sínum og geti rökstutt svör sín, með stuðningi hvort heldur sem er orða, mynda eða tákna.

 

Til baka
English
Hafðu samband