Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kardemommubærinn í 1.-2.bekk

09.02.2012
Kardemommubærinn í 1.-2.bekk

Í gær sýndi 1.-2.bekkur Kardemommubæinn fyrir foreldra. Nemendur hafa verið að æfa síðan í byrjun janúar og gekk sýningin ljómandi vel. Í morgun fengu svo aðrir nemendur Sjálandsskóla að sjá sýninguna í morgunsöng. Krakkarnir stóðu sig mjög vel, sungu og léku þetta vinsæla leikrit.

Myndir frá forsýningunni má finna á myndasíðu 1.-2.bekkjar, en sýningin í dag var einnig tekin upp á myndband.

Til baka
English
Hafðu samband