Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Forvarnargildi íþrótta-og tómstundastarfs

07.03.2013
Forvarnargildi íþrótta-og tómstundastarfsFimmtudaginn 14. mars stendur Náum áttum hópurinn fyrir morgunverðarfundi á Grand-hótel kl. 8.15 – 10.00.
Fundurinn ber yfirskriftina „Forvarnargildi íþrótta- og tómstundastarfs – hvað virkar og hvað virkar ekki?“

Á mælendaskrá eru þeir Árni Guðmundsson, formaður foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum og lektor í tómstundafræðum við HÍ og dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur og lektor við HR. Fundurinn verður með nýju fyrirkomulagi að þessu sinni, hvor frummælandi flytur 10 mínútna langt erindi í byrjun en síðan taka þeir við fyrirspurnum og eiga í samtali við salinn. Áhugafólk um íþróttir og forvarnarstarf ætti ekki að láta þennan fund fram hjá sér fara.

Nánari upplýsingar 

N8mars2013.pdf

Til baka
English
Hafðu samband