Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Náum áttum - fundur miðv.25.sept.

20.09.2013
Náum áttum - fundur miðv.25.sept.Kæra skólafólk og foreldrar.

Á fyrsta fundi Náum áttum á miðvikudaginn kemur, 25. september, verður fjallað um vímuefnamál og unglinga. Á fundinu verður sagt frá nýjum rannsóknum á vímuefnaneyslu unglinga og mun Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsóknir og greiningu skýra frá niðurstöðum. Vímuefnamarkaðurinn á Íslandi tekur stöðugt breytingum og mun Jóhann Skúlason rannsóknarlögreglumaður frá Fíkniefnadeild LRH skýra frá þeirri mynd sem núna blasir við þeim sem starfa við málaflokkinn. Unglingar og vímuefni eru stöðugt umfjöllunarefni í samfélaginu en forvarnastarf tekur æ meira mið af rannsóknum á þessu sviði. Í leiðbeinenda- og uppeldisstarfi þurfa foreldrar, fagfólk, starfsfólk skóla, heilsugæsla og félagasamtök réttar upplýsingar og fræðslu á hverjum tíma um stöðu þessara mála. Þessi Náum áttum fundur ætti að gefa fólki raunsanna mynd af stöðunni í vímuefnamálum unglinga.

Kveðja, Björn

Fundurinn verður haldinn á Grandhótel kl.8:15-10

Nánari upplýsingar um fundinn 


Til baka
English
Hafðu samband