Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lína Langsokkur -Brúðuleikhús 3.-4.bekk

28.11.2013
Lína Langsokkur -Brúðuleikhús 3.-4.bekk

Í morgun var 3.-4.bekkur með brúðuleikhús í morgunsöng. Nemendur hafa verið að vinna með þemað um Línu Langsokk og bjuggu til leikbrúður með persónum um sögunni. 3.bekkur bjó til sokkabrúður og 4.bekkur gerði brúður úr pappamassa og saumuðu búninga. Brúðurnar unnu þau í textíl og myndmennt og 3.bekkur gerði leiksviðið í smíðatímum.

Í gær var haldin sýning fyrir foreldra og í dag fyrir nemendur í 1.-7.bekk, Alþjóðaskólann og leikskólann Sjáland. 

Glæsileg sýning eins og sjá má á myndunum á myndasíðunni 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband