Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Zumba í morgunsöng

07.02.2014
Zumba í morgunsöng

Lífshlaupið hófst hjá okkur í vikunni og af því tilefni fengum við Zumba-kennara frá Klifinu til að taka nokkra léttar æfingar í morgunsöng í dag. Eins og sjá má á myndunum tóku allir virkan þátt í dansinum og krakkarnir voru ánægðir með að byrja daginn á hressilegri hreyfingu.

Við hvetjum alla til að hreyfa sig næstu vikurnar og mun skólinn leggja sitt af mörkum til að hvetja nemendur áfram í Lífshlaupinu.

Heimasíða Lífsshlaupsins 

 

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband