Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sitthvor sokkadagur og Zumba

13.02.2014
Sitthvor sokkadagur og Zumba

Í dag er sitthvor sokkadagur hjá okkur í Sjálandsskóla. Þá koma allir í sitthvorum sokknum og er dagurinn einn af tyllidögum skólans þar sem brugðið er út af vananum með alls konar klæðnaði. Næsti tyllidagur er gleraugnadagur 17.mars.

Dagurinn hófst á Zumba dansi í morgunsöng sem er liður í Lífshlaupinu sem skólinn tekur þátt í.

Á myndasíðunni má sjá myndir frá Zumbanu í morgunsöng og sokkadeginum.

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband