Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Viltu vita meira um Snapchat, Instagram og Facebook?

24.03.2014
Viltu vita meira um Snapchat, Instagram og Facebook?

Við minnum á fræðslufund Grunnstoða Garðabæjar sem haldinn verður í Sjálandsskóla í dag, mánudag kl.20-22. Við hvetjum alla foreldra til að mæta og kynna sér hvað Garðabær er að gera í forvarnar- og eineltismálum. 

Dagskrá:

Einelti í Garðabæ og framtíðarsýn
Jóna Sæmundsdóttir, formaður forvarnarnefndar Garðabæjar, kynnir hvað verið er að gera í eineltismálum í Garðabæ og hvað stendur til.

Þegar allir leggjast á eitt
Elísabet Gunnarsdóttir og Ásta Sölvadóttir kynna verkefnið Jafnrétti, kynheilbrigði og velferð á öllum skólastigum í Garðabæ sem verið er að vinna í Garðabæ þvert á allar stofnanir.

Ást gegn hatri—hvar liggja hætturnar?
Hermann Jónsson, faðir Selmu Bjarkar, kennir foreldrum á vefsíður og smáforrit eins og snapchat, instagram, facebook og fleira, fer yfir hvar hætturnar á netinu liggja, hvert aðdráttarafl barna og unglinga er og hvað við getum gert sem foreldrar.
Grunnstoð

Auglýsing um fundinn 

Til baka
English
Hafðu samband