Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sjálandsskóli sigurvegari á Stíl -hönnunarkeppni Samfés

30.11.2015
Sjálandsskóli sigurvegari á Stíl -hönnunarkeppni Samfés

Nemendur í Sjálandsskóla urðu í 1.sæti í Stíl, hönnunarkeppni Samfés, um helgina. Þema keppninnar var náttúra og það voru þær Jóhanna María Sæberg, Jóhanna Guðrún Jóhannsdóttir og Lína Rut Árnadóttir sem áttu heiðurinn að vinningskjólnum. Þær sáu einnig um förðun og hárgreiðslu.  Stelpurnar hafa undirbúið keppnina í allt haust, m.a.í textílvali og í félagsmiðstöðinni Klakanum. 

Stíll er hárgreiðslu- förðunar- og hönnunarkeppni grunnskólanemenda. Keppnin er haldin á hverju ári og núna tóku rúmlega 200 unglingar í 40 liðum þátt í keppninni. 

Við óskum stelpunum til hamingju með frábæran árangur í keppninni.

Myndir frá keppninni

Fréttir af keppninni:

http://www.mbl.is/folk/frettir/2015/11/28/klakinn_bestur_a_stil/

http://www.visir.is/klakinn-sigradi-stil/article/2015151128756

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband