Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vinaliðar

01.02.2016
Vinaliðar

Vinaliðar er nýtt verkefni hjá okkur í Sjálandsskóla sem nemendur í 1.-7.bekk taka þátt í.  Vinaliðaverkefnið gengur út á það að hvetja nemendur til meiri þátttöku í afþreyingu í frímínútunum og skapa betri skólaanda. 

Nokkrir nemendur í 3.-7.bekk sem eru valdir af bekkjarfélögum sínum, sjá um að stjórna leikjum í frímínútunum. Allir nemendur í 1.-7.bekk geta svo tekið þátt í þessum leikjum.

Að jafnaði er valinn einn Vinaliði fyrir hverja fimm nemendur. Nemendur í 3.-7.bekk hafa nú þegar kosið sína vinaliða sem munu stjórna leikjum á þessari önn. Vinaliðar fá námskeið og kennslu í að stjórna leikjum.

Umsjónarmenn Vinaliðaverkefnisins í Sjálandsskóla er Davíð íþróttakennari og Silja textílkennari.

Hverjir geta orðið vinaliðar? 

Nánari upplýsingar um vinaliðaverkefnið  

 

 

Til baka
English
Hafðu samband