Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lög frá 5.og 6.bekk

09.06.2016
Lög frá 5.og 6.bekk

Á vorönn var m.a. þema um trúarbrögð hjá 5.og 6.bekk, þar sem áherslan var kristin trú. Af því tilefni hlustuðu nemendur á trúarlega tónlist helstu trúarbragða mannkyns en lærðu svo sérstaklega um trúarlega tónlist á Íslandi.

Lokaverkefnið í þeirri vinnu var að setja gamla sálma í reggae útsetningu. Fyrir valinu urðu sálmarnir "Ó þá náð að eiga Jesú" sem 6. bekkur vann með og "Son Guðs ertu með sanni" sem 5. bekkur lék.

Nemendur fengu að velja sér hljóðfæri og þegar lögin höfðu verið æfð vor þau tekin upp.

Nú er búið að hljóðblanda lögin og þau er hægt að heyra hér að neðan:

Ó þá náð að eiga Jesú 

Son Guðs ertu með sanni 
Til baka
English
Hafðu samband