Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sumarlestur á Bókasafni Garðabæjar

10.06.2016
Sumarlestur á Bókasafni Garðabæjar

Bókasafn Garðabæjar mun standa fyrir Sumarlestri, sem hefst 10. júní, en það er lestrarhvetjandi verkefni fyrir grunnskólabörn í Garðabæ sem stuðlar að því að þau viðhaldi lestrarkunnáttu sinni yfir sumartímann og komi vel undirbúin í skólann í haust.

Öll börn eru hvött til að vera með og nýta sér hinn fjölbreytta bókakost sem safnið hefur upp á að bjóða, ekki síst meðan skólabókasöfnin eru lokuð. Dreginn verður út lestrarhestur vikunnar og fær hann bók í verðlaun og 18.ágúst verður haldin skemmtileg lokahátíð þar sem allir virkir þátttakendur munu fá glaðning fyrir lestrardugnaðinn.

Auglýsing um Sumarlestur

Bæklingur um Sumarlestur 

 

 

Til baka
English
Hafðu samband