Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fræðslufundur fyrir foreldra -mið.kl.17

23.10.2019
Fræðslufundur fyrir foreldra -mið.kl.17

Nú bjóðum við ykkur forráðamönnum að koma og fá kynningu á niðurstöðum hjá Margréti Lilju Guðmundsdóttur lektor við HR og umsjónarmanni hjá Rannsóknum og greiningu um könnun á högum og líðan barna og ungmenna.

Kynningin fer fram hér í Sjálandsskóla miðvikudaginn 23. október kl. 17:00.

Það verður kaffi á könnunni. 

Árlega er framkvæmd könnun á vegum Rannsóknar og greiningar við Háskólann í Reykjavík. Í febrúar 2019 voru gerðar tvær kannanir á landsvísu. Annarsvegar var lögð könnun fyrir alla nemendur í 8., 9. og 10. bekk , hinsvegar var lögð fyrir könnun fyrir nemendur í 5. - 7.bekk þar sem skoðaðir voru ýmsir þættir sem tengjast högum og líðan barna og ungmenna.

Foreldrar eru lykilmenn barnanna sinna. Það er margt í niðurstöðunum sem gefur okkur tilefni til að staldra við. Þessar niðurstöður varða okkur öll! Sameinuð getum við snúið þeirri alvarlegu stöðu við, sem blasir við okkur á hverjum degi og snýr að líðan ungmenna og aukinni vímuefnanotkun á Íslandi.

Til að við getum áætlað fjölda þá biðjum við foreldra að skrá sig á þessari slóð:

https://forms.gle/yauBhvbxfcvmYcwY9

Hlökkum til að sjá ykkur

 

Til baka
English
Hafðu samband