Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólastarf frá 4.maí

22.04.2020
Skólastarf frá 4.maí

Tilkynnt hefur verið um afléttingu takmarkana á skólastarfi frá og með mánudeginum 4. maí nk. og nú hefur heilbrigðisráðuneyti birt auglýsingu þar sem nánar er fjallað um útfærslu þess og áhrif á mismunandi skólastig.

Þegar takmarkanir á skólahaldi falla úr gildi verður starf leik- og grunnskóla með hefðbundnum hætti og nemendur í framhalds- og háskólum mega á ný mæta í sínar skólabyggingar. Áfram verða almennar sóttvarnarráðstafanir í skólum, sem og annars staðar, og skólar fylgja viðbragðsáætlunum sínum varðandi mögulegt smit. Neyðarstigi almannavarna vegna COVID-19 er áfram í gildi.

Grunnskólar munu starfa með hefðbundnum hætti frá og með 4. maí nk. en þar verða áfram í gildi sóttvarnarráðstafanir sem snúa m.a. að hreinlæti og sótthreinsun. Fjöldatakmarkanir í nemendahópum verða ekki lengur í gildi og nemendur geta notað sameiginleg svæði, s.s. útisvæði og mötuneyti óhindrað. Fjöldatakmarkanir gilda þó um fullorðna sem starfa í leik- og grunnskólum, þ.e. 2 metra fjarlægð og hámarksfjöldi fullorðinna einstaklinga er 50 í hverju rými. Mælst er til þess að skólar og foreldrafélög skipuleggi ekki fjölmennar samkomur út þetta skólaár og takmarki almennt gestakomur í skólana.

Nánar um skóla-og íþróttastarf barna:

• Leikskólar munu starfa með hefðbundnum hætti frá og með 4. maí nk. en þar verða áfram í gildi sóttvarnarráðstafanir sem snúa m.a. að hreinlæti og sótthreinsun og aðgengi utanaðkomandi að skólabyggingum. Mælst er til þess að skólar og foreldrafélög skipuleggi ekki fjölmennar samkomur og takmarki almennt gestakomur í skólana; þetta á til dæmis um útskriftir, sveitaferðir, sumarhátíðir og slíkt. Um samkomur gildir að fullorðnir verða að virða fjöldatakmarkanir (ekki fleiri en 50 í sama rými) og halda 2 metra fjarlægð sín í milli. Samkomur á vegum skóla geta farið fram utan hans en án fullorðinna gesta.

• Frístundastarf og starf félagsmiðstöðva kemst í hefðbundið horf á ný en gætt verður að almennum sóttvarnarráðstöfunum þar sem annars staðar.

• Íþrótta- og sundkennsla barna og ungmenna verður með hefðbundnum hætti, bæði út og inni.

• Æfingar og keppnir í skipulögðu íþróttastarfi barna og ungmenna (yngri en 16 ára) eru heimilar án áhorfenda eftir 4. maí, hvort heldur utan- eða innanhúss en 2 metra nándarreglan skal virt eins og kostur er.

• Nemendum framhalds- og háskólaskóla verður heimilt að mæta aftur í skólabyggingar eftir 4. maí, en í gildi verða fjöldatakmarkanir (ekki fleiri en 50 í sama rými) og fólki gert að halda 2 metra fjarlægð sín í milli. Það á einnig við um starf símenntunarmiðstöðva og aðila sem sinna fullorðinsfræðslu og tón- og listaskóla. Ákvörðun um fyrirkomulag náms eftir 4. maí fer eftir aðstæðum í hverjum skóla fyrir sig.

Nánar á vef Stjórnarráðsins og á Covid.is

 

Til baka
English
Hafðu samband