Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

5.bekkur á kajak

20.05.2020
5.bekkur á kajak

Í vikunni fóru nemendur í 5.bekk á kajak. Skólinn á nokkra kajaka og allir nemendur á miðstigi fá tækifæri til að fara út á sjókajak á vorin og haustin. Kajakferðirnar vekja alla jafna mikla lukku og margir vinna stóra sigra þegar þeir þurfa að treysta á sjálfan sig einir á kajak. Fyllsta öryggis er gætt og eru kennararnir þjálfaðir og reyndir kajakleiðbeinendur.

Á myndasíðu 5.bekkjar má sjá myndir frá kajakferðinni

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband