Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nemendur í 1.bekk fá hjálma

14.04.2021
Nemendur í 1.bekk fá hjálma

Í dag fengu nemendur í 1.bekk reiðhjólahjálma að gjöf frá Kiwanis. Það er árlegt á hverju vori að félagar frá Kiwanisklúbbi Garðabæjar koma í heimsókn og færa öllum nemendum í 1.bekk reiðhjólahjálma að gjöf.

Þá er tilefni til að minna á mikilvægi þess að nota hjálma á hjólum, hlaupahjólum og línuskautum. 

Við þökkum Kiwanis og Eimskip fyrir þessa frábæru gjöf.

Myndir frá afhendingu hjálmanna

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband