Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Reglur um sóttkví í skólum

26.08.2021
Reglur um sóttkví í skólum

Sóttvarnalæknir hefur endurskoðað leiðbeiningar um sóttkví á öllum skólastigum og í frístundastarfi og félagsmiðstöðvum. Með breytingunum má gera ráð fyrir að færri þurfi að sæta sóttkví ef smit kemur upp.

Í leiðbeiningunum eru skilgreind viðmið um sóttkví eftir því hvort samvera við smitaðan einstakling hafi verið mikil eða ekki. Ef samskipti hafa ekki verið mikil samkvæmt skilgreiningu verður ekki gerð krafa um sóttkví heldur smitgát og getur viðkomandi þá mætt í skólann. Hraðpróf verða notuð þegar í hlut eiga einstaklingar sem einungis þurfa að sæta smitgát, eins og nánar er skýrt í leiðbeiningunum.

Leiðbeiningar um sóttkví í skólum af vef Stjórnarráðsins

 

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband