Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

09.12.2016

Jólaföndur með leikskólanum Sjálandi

Jólaföndur með leikskólanum Sjálandi
Í dag fengu nemendur í 1.og 2.bekk heimsókn frá leikskólanum Sjálandi. Krakkarnir föndruðu saman jólatré og annað jólaskraut á meðan þau hlustuðu á jólatónlist. Það var því sannkölluð jólastemning hjá yngstu nemendunum í dag í Sjálandsskóla.
Nánar
09.12.2016

Tilkynning frá Sælukoti

Við minnum á að síðasti dagur til að skrá börnin í Sælukot í jólaleyfinu​ er í dag, föstudag, 9.desember. Ekki verður tekið á móti skráningum eftir það. Hafið samband við Hildi á hildurha@sjalandsskoli.is Allar nánari upplýsingar voru sendar í...
Nánar
08.12.2016

Jólakveðja frá Sjálandsskóla og Alþjóðaskólanum

Jólakveðja frá Sjálandsskóla og Alþjóðaskólanum
Nú er komið jólalag á áskorunarmyndbandið sem allir tóku þátt í núna fyrr í vikunni. Með þessu myndbandi viljum við senda öllum foreldrum og aðstandendum okkar bestu jóla-og nýárskveðjur.
Nánar
08.12.2016

Jólasveinavísur hjá 1.og 2.bekk

Jólasveinavísur hjá 1.og 2.bekk
Í morgun fluttu nemendur í 1. og 2. bekk Jólasvein​avísur eftir Jóhannes úr Kötlum. Krakkarnir stóðu sig virkilega vel og í lokin sungu þeir lagið Bráðum koma blessuð jólin.
Nánar
06.12.2016

"Mannequin Challenge" í Sjálandsskóla og Alþjóðaskólanum

"Mannequin Challenge" í Sjálandsskóla og Alþjóðaskólanum
í morgun tókum við þátt í skemmtilegri áskorun sem snýst um að taka myndband af nemendum á meðan allir eru grafkyrrir. Þetta er vinsælt á samfélagsmiðlunum og krakkarnir í Sjálandsskóla og Alþjóðaskólanum voru mjög spennt að taka þátt í þessu. Þau...
Nánar
02.12.2016

Gunnar Helgason rithöfundur í heimsókn

Gunnar Helgason rithöfundur í heimsókn
Í morgun fengum við góðan gest í heimsókn þegar rithöfundurinn Gunnar Helgason kom og las upp úr nýrri bók sinni, Pabbi prófessor. Í lestrinum fékk leikarinn góðkunni, Gunnar Helgason að sýna hæfileika sína og hélt hann athygli nemenda allan tímann...
Nánar
30.11.2016

Stofutónleikar í tónmenntavali

Stofutónleikar í tónmenntavali
Í gærkvöldi fóru fram stofutónleikar í tónmenntastofu skólans. Nemendur í OFUR rafmögnuðu samspili buðu til tónleikanna þar sem leikin voru lög sem þau hafa verið að æfa það sem af er vetri. Efnisskráin var mjög fjölbreytt þar sem leikin voru verk...
Nánar
28.11.2016

Skipulagsdagur miðvikudaginn 30.nóvember

Skipulagsdagur miðvikudaginn 30.nóvember
Við viljum minna á skipulagsdaginn miðvikudaginn 30.nóvember. Sælukot er opið fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.
Nánar
28.11.2016

1.og 2.bekkur heimsækir FG

1.og 2.bekkur heimsækir FG
Í síðustu viku fóru nemendu í 1. og 2. bekkur í Fjölbrautarskólann í Garðabæ á leikritið um Ævintýri Ragnars húsálfs. Allir skemmtu sér vel á leiksýningunni og voru nemendur til fyrirmyndar.
Nánar
25.11.2016

Dagskráin í desember

Dagskráin í desember
Í desember verður margt um að vera hjá okkur í Sjálandsskóla. Hér má sjá það helsta sem verður á dagsskrá í desember.
Nánar
25.11.2016

Jólaþema

Jólaþema
Á miðvikudaginn var jólaþema hjá okkur í Sjálandsskóla. Þá tóku allir nemendur þátt í að búa til jólaskraut sem við notum í skólanum okkar.
Nánar
21.11.2016

Slökkviliðið heimsækir 3.bekk

Slökkviliðið heimsækir 3.bekk
Í dag fengu nemendur í 3.bekk heimsókn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Nemendur fengu fræðslu um starfsemi slökkviliðs og sjúkrabíla. Að því loknu fengu krakkarnir að skoða sjúkrabílinn og sjúkraflutningamenn sögðu þeim frá neyðarnúmerinu og...
Nánar
English
Hafðu samband