Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

08.11.2016

Ævar vísindamaður í heimsókn

Ævar vísindamaður í heimsókn
Í dag fengum við góðan gest í heimsókn í 3.-7.bekk þar sem Ævar vísindamaður kom og las upp úr nýjustu bók sinni, Þín eigin hrollvekja. Nemendur hlustuðu spenntir á upplesturinn og spurðu spurninga í lokin
Nánar
07.11.2016

Vanda Sigurgeirsdóttir fjallar um vináttu

Vanda Sigurgeirsdóttir fjallar um vináttu
Í dag hófst vinavika hjá okkur í Sjálandsskóla og munu nemendur vinna ýmis verkefni tengd vináttu og einelti. Í morgun kom Vanda Sigurgeirsdóttir og fjallaði um einelti, hlutverk áhorfenda, vináttu og um jákvæða og neikvæða leiðtoga.
Nánar
03.11.2016

Líf og fjör hjá 7.bekk á Reykjum

Líf og fjör hjá 7.bekk á Reykjum
Á morgun koma krakkarnir í 7.bekk heim frá Reykjum þar sem þau hafa dvalið í skólabúðum alla vikuna. Það hefur verið líf og fjör hjá þeim og allt gengið vel.
Nánar
03.11.2016

Myndir frá 1.og 2.bekk

Myndir frá 1.og 2.bekk
Nú eru komnar margar nýjar myndir frá 1. og 2.bekk inn á myndasíðu skólans. Þar má m.a.sjá myndir af Halloween ballinu hjá 1.og 2.bekk.
Nánar
02.11.2016

Rýmingaræfing

Rýmingaræfing
Í dag var haldin rýmingaræfing þar sem æfð voru viðbrögð við eldsvoða. Allir nemendur og starfsfólk skólans og íþróttahússins yfirgáfu bygginguna þegar brunabjallan fór í gang. Æfingin gekk vel og það tók 3 mínútur að rýma skólann.
Nánar
01.11.2016

Myndband frá 3.-4.bekk

Myndband frá 3.-4.bekk
Krakkarnir í þriðja og fjórða bekk hafa í haust verið að læra um Garðabæ. Í tónmennt voru sungin lög og textar eftir Garðbæinga. Einn þeirra er Sveinbjörn Egilsson sem átti heima á Álftanesi á nítjándu öldinni og samdi vögguvísuna Sofa urtubörn.
Nánar
01.11.2016

Fréttir og myndir frá Reykjum

Fréttir og myndir frá Reykjum
7. bekkur dvelur á Reykjum í Hrútafirði þessa vikuna í góðu yfirlæti. Við komum hingað um hálf tólf í gær og allir fengu þá úthlutað herbergi og nemendur komu sér fyrir.
Nánar
31.10.2016

Myndir frá Kajakferð 7.bekkjar

Myndir frá Kajakferð 7.bekkjar
Nú eru komnar myndir á myndasíðuna frá kajakferð 7.bekkjar í síðustu viku.
Nánar
31.10.2016

7.bekkur á Reyki í dag

7.bekkur á Reyki í dag
Í dag fer 7.bekkur í skólabúðir á Reyki. Krakkarnir verða þar alla vikuna og koma aftur á föstudag. Hægt er að fá nánari upplýsingar um skólabúðirnar Reykjum á heimasíðu þeirra
Nánar
28.10.2016

1.bekkur á Náttúrufræðistofnun Kópavogs

1.bekkur á Náttúrufræðistofnun Kópavogs
Í vikunni fóru nemendur í 1.bekk í heimsókn á Náttúrufræðistofnun Kópavogs þar sem þau skoðuðu ýmis uppstoppuð dýr, s.s. sjávardýr og fugla. Krakkarnir voru mjög áhugasamir eins og sjá má á myndunum sem kennararnir tóku í heimsókninni.
Nánar
26.10.2016

Muna efti sundgleraugum

Muna efti sundgleraugum
Það er mjög mikilvægt fyrir framfarir barnanna í sundi að þau komi með sundgleraugu í hvern einasta sundtíma. Þetta gildir jafnt í 10. bekk sem í 1. bekk.
Nánar
26.10.2016

Sólgleraugnadagur

Sólgleraugnadagur
Í dag var sólgleraugnadagur hjá okkur í Sjálandsskóla og þá mættu margir með sólgleraugu. Í hverjum mánuði erum við með einn tyllidag þar sem við bregðum út af venjunni á skemmtilegan hátt.
Nánar
English
Hafðu samband