Fréttir
Listasýning á foreldraviðtalsdegi
Í gær, þriðjudaginn 7. febrúar, á foreldraviðtalsdegi var haldin listasýning á verkum nemenda. Þar mátti sjá ýmis falleg listaverk sem nemendur í 1.-7.bekk hafa unnið í vetur í listgreinunum myndmennt, smíði og textíl. Á myndasíðunni má sjá sýnishorf af því sem var á listasýningunni. ... [ nánar ]Lífshlaupið
Í síðustu viku hófst Lífshlaupið að fullum krafti hjá okkur í Sjálandsskóla. Nemendur og starfsmenn taka þátt í átakinu sem felst í því að hreyfa sig á hverjum degi næstu vikurnar. Á föstudaginn fóru allir í göngutúr á Arnarnesið eftir hádegi og á myndasíðunni má sjá myndir frá göngunni. ... [ nánar ]7.bekkur á Reykjum í Hrútafirði
7. Bekkur er á Reykjum í Hrútafirði þessa vikuna og er ferðin búin að ganga ljómandi vel. Krakkarnir eru glaðir og jákvæðir og taka fullan þátt í dagskránni. Þau eru farin að kynnast krökkunum úr hinum skólunum, Álftanesskóla og Síðuskóla á Akureyri og skemmta þau sér konunglega saman. Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg ... [ nánar ]Blái hnötturinn - leiksýning 5.-7.bekkjar
Í síðustu viku sýndi 5.-7.bekkur leikritið um Bláa hnöttinn við mikinn fögnuð áhorfenda. Á fimmtudag var sýning fyrir foreldra og mættu þar rúmlega 300 manns og meðal gesta var höfundur Bláa hnattarins, Andri Snær Magnason. Á föstudag voru haldnar tvær sýningar, fyrst fyrir nemendur Sjálandsskóla og síðan fyrir alla nemendur í 4.bekk í Garðabæ. ... [ nánar ]Skákmót í unglingadeild
Í dag er íslenski skákdagurinn og verður hann haldinn ár hvert 26. janúar sem er afmælisdagur Friðriks Ólafssonar stórmeistara. Af því tilefni var haldið skákmót í unglingadeild Sjálandsskóla. Þar kepptu um 40 unglingar. ... [ nánar ]Fjör í snjónum
Þó að snjórinn síðustu daga hafi kannski ekki kætt alla landsmenn þá voru börnin í Sjálandsskóla ánægð með allan snjóinn og urðu margir snjókarlar til í frímínútunum í gær. Á myndasíðunni má sjá nokkrar myndir frá leikvellinum í Sjálandsskóla þar sem nemendur léku sér í snjónum. Í dag er ekkert lát á snjókomunni og munu snjókörlunum sjálfsagt fjölga í dag. ... [ nánar ]Heimsókn í Borgarleikhúsið
Þessa vikuna hafa nemendur í 5.-7.bekk farið í nokkrum hópum og heimsótt Borgarleikhúsið, í tengslum við sýninguna um Bláa hnöttinn sem nemendur eru að vinna að. Þeir fengu að skoða búningageymsluna, leikmuni og fleira. Ennig fengur þeir að fræðast um það sem gerist baksviðs á leiksýningu. Á myndasíðunni má sjá myndir frá einni heimsókninni ... [ nánar ]Náttfatadagur
Í dag var Náttfatadagur í Sjálandsskóla og komu nemendur og starfsfólk í náttfötum í skólann. Sumir mættu líka í náttslopp eða með bangsana sína. Þetta var skemmtileg tilbreyting í skólastarfinu og á myndasíðunni má sjá myndir frá náttfatadeginum.... [ nánar ]Jónsi í heimsókn hjá 5.-7.bekk
Í dag heimsótti söngvarinn Jónsi nemendur í 5.-7.bekk. Hann fjallaði um söngleiki og leiksýningar og gaf nemendum góð ráð um hvernig maður kemur fram á sviði og hvað ber að varast. Tilefnið var söngleikurinn um Bláa hnöttinn sem 5.-7.bekkur er að undirbúa þessa dagana. Lokasýningin verður haldin 26.janúar... [ nánar ]Frístundabíll Garðabæjar
Frístundabíll Garðabæjar verður áfram starfræktur á vorönn. Frístundabíllinn hefur það hlutverk að keyra börn frá tómstundaheimilum grunnskóla í þrótta- og tómstundastarf. Frístundabíllinn ekur alla virka daga kl. 14.30-17.00 Bíllinn fer eina ferð fram og til baka á hverjum 30 mínútum. Fyrsta ferð dagsins er frá Mýrinni kl. 14.30. ... [ nánar ]Andri Snær Magnason rithöfundur í heimsókn
Á föstudaginn kom Andri Snær Magnason rithöfundur í heimsókn í 5.-7.bekk og fjallaði um bók sína Blái hnötturinn. Tilefnið var að á næstu 3 vikum munu nemendur í 5.-7. bekk setja upp leiksýningu/söngleik um Bláa hnöttinn. Undibúningur mun taka mikinn tíma og hefur stundaskrám 5.-7.bekkjar verið breytt þannig að vinna við leiksýninguna mun fara fram alla daga í janúar þangað til sýningin hefst, en áætlað er að sýna í lok mánaðarins... [ nánar ]Lög frá 8.bekk
8. bekkur hefur nýlokið þemanu tónlist og 20. öldin. Í þemanu áttu nemendur að búa til hljómsveitir sem kynntu sér sérstaklega einn tónlistarstíl 20. aldarinnar. Hljómsveitirnar áttu svo að semja, æfa og taka upp lag í viðkomandi stíl... [ nánar ]Gleðileg jól !
Í dag var haldin jólaskemmtun í Sjálandsskóla og dansað í kringum jólatréð. Nemendur voru með skemmtiatriði í sal, kórinn söng og 5.bekkur sýndi helgileikinn. Þá voru haldin stofujól hjá hverjum hóp þar sem nemendur komu með smákökur og að lokum var dansað í kringum jólatréð. ... [ nánar ]Jólagleði 10.bekkjar
Þriðjudaginn 13. desember var jólagleði 10.bekkjar, samstarfsverkefni Garðalundar og Sjálandsskóla. Nemendur og kennarar gerðu sér glaðan dag með því að far út að borða á veitingastaðinn Caruso og fara í bíó. Jólagleðin heppnaðist mjög vel og skemmtu allir sér konunglega... [ nánar ]Mugison í Sjálandsskóla
Í dag fengum við góðan gest í Sjálandsskóla. Tónlistarmaðurinn Mugison kom með gítarinn og tók nokkur lög fyrir nemendur en tilefnið var að skólinn vann myndbandakeppni á degi íslenskrar tónlistar sem haldinn var 1.desember. ... [ nánar ]Jólaleikrit, kirkjuferð og jólamatur
Í dag var jólalegt hjá okkur í Sjálandsskóla. Í morgunsöng var 1.-2.bekkur með skemmtiatriði um jólasveinana. Síðan löbbuðu allir upp í Vídalínskirkju þar sem sungin voru nokkur lög, hlustað á jólaguðspjallið, jólasögu o.fl. og voru krakkarnir alveg til fyrirmyndar í kirkjuferðinni. Í hádeginu var jólamatur, hangikjöt og tilheyrandi meðlæti og ís í eftirrétt. ... [ nánar ]Líf og fjör í Sjálandsskóla og Alþjóðaskólanum
Í dag var mikið um að vera í Sjálandsskóla. Í morgunsöng spilaði Austin, 5 ára nemandi í Alþjóðaskólanum, á fiðluna sína og Þórdís í 7.bekk spilaði á selló. Eftir útivistina tóku allir nemendur Sjálandsskóla og Alþjóðaskólans þátt í að búa til jólagjafir. Jólatónlist hljómaði um allan skóla og nemendur á öllum aldri hjálpuðust að við að búa til jólagjafir og jólapappír. Þar sem innihald jólapakkanna er algjört leyndarmál þá birtum við ekki myndir frá ... [ nánar ]Kórinn með tónleika í dag
Í dag, fimmtudag 15.desember, heldur kór Sjálandsskóla tónleika í sal skólans kl.17.00. Við hvetjum alla til að koma og hlusta á þennan frábæra kór sem syngur undir stjórn og undirspil Ólafs Schram tónmenntakennara. Aðgangseyrir aðeins kr.300.... [ nánar ]Morgunsöngur í desember
Síðustu morgna hefur verið mikið um að vera í morgunsöng. Á föstudaginn var foreldrakaffi þar sem margir foreldrar komu og áttu notalega morgunstund. Þá spiluðu 4 stúlkur úr 3.-4.bekk á hljóðfæri, þær Arna, Helena Ýr, Hrafnhildur Ming og Rakel. Í dag spilaði Bjarki Snær í 3.-4.bekk jólalag á hljóðfærið sitt. Í síðustu viku var 3.-4.bekkur með leikritið um Línu langsokk og á föstudaginn verður 1.-2.bekkur með leiksýningu og þá er einnig foreldrakaffi. Mugison mun síðan kíkja í heimsókn til okkar næstu daga ... [ nánar ]Kór Sjálandsskóla á Garðatorgi á morgun
Kór Sjálandsskóla mun syngja nokkur jólalög á Garðatorgi laugardaginn (10.des) klukkan 12:30. Við hvetjum alla til að koma og hlýða á þennan skemmtilega kór sem syngur undir stjórn Ólafs Schram tónlistarkennara. ... [ nánar ]Ævar vísindamaður heimsækir 3.-4.bekk
Í dag fengu krakkarnir í 3. - 4.bekk til sín góða heimsókn frá Ævari vísindamanni en hann er jafnframt starfsmaður í fyrirtækinu Marel hér í Garðabæ. Ævar gaf sér góðan tíma með nemendum, sýndi þeim nokkrar tilraunir og spjallaði við þau og voru krakkarnir gríðarlega áhugasöm. Fyrirtækið Marel var svo rausnarlegt að gefa síðan öllum krökkunum Glósubók Ævars vísindamanns en í henni er að finna fjöldann allan af frábærum tilraunum ... [ nánar ]Syngjum saman - myndband
Á degi íslenskrar tónlistar þann 1.desember tóku allir krakkar Sjálandsskóla, ásamt Alþjóðaskólanum og leikskólanum Sjálandi, þátt í fjöldasöng sem útvarpað var á öllum útvarpsstöðum samtímis. Söngurinn var tekinn upp á myndband sem skoða má á Youtube. ... [ nánar ]Leiklist í unglingadeild
Krakkar í áttunda, níunda og tíunda bekk hafa verið að hittast með leikstjóra einu sinni í viku í tvo mánuði. Þar hefur gengið á ýmsu svosem karaktersköpun, spunavinnu sem og alls kyns leikjum. Krakkarnir hafa staðið sig ofsalega vel og hópurinn stendur þétt saman. Núna eru allir komnir með hlutverk í hendurnar fyrir söngleik sem verður frumsýndur um miðjan febrúar. Að þessu sinni verður settur upp söngleikurinn "Hárið". ... [ nánar ]1.desember
Í dag, 1.desember, var mikið um að vera í Sjálandsskóla. Það var rauður dagur þar sem allir mættu í einhverju rauðu. Í byrjun dags hittust allir á sal þar sem 8.bekkur fræddi okkur um 1.desember og um þemaverkefnið 1918 sem þau hafa verið að vinna með í haust. Klukkan ellefu komu svo allir aftur á sal og sungu saman þrjú íslensk lög í tilefni af degi íslenskrar tónlistar. Lögin voru spiluð á öllum útvarpsrásum landsmanna og sungu krakkarnir okkar með af fullum krafti.... [ nánar ]Foreldrakaffi á morgun
Á morgun, föstudag 2.desember, er foreldrum boðið í kaffi í morgunsöng kl.8.10 í boði foreldrafélagsins. Við hvetjum alla foreldra til að kíkja í morgunkaffi, eiga notalega stund og hitta aðra foreldra. Foreldrakaffið verður einnig næstu föstudagsmorgna 9. og 16. desember. ... [ nánar ]Rauður dagur á morgun
Á morgun, 1.desember, verður rauður dagur hjá okkur í Sjálandsskóla. Þá ætla allir að mæta í einhverju rauðu, rauðri peysu, rauðum buxum eða bara með rauða jólasveinahúfu. Á föstudaginn verður svo foreldrakaffi í morgunsöng. ... [ nánar ]9. bekkur heimsótti Lækjarskóla
Í tilefni af Nýbúaþemanu í 9. bekk fórum við í heimsókn í Lækjarskóla (móttökudeild) og hittum þar nemendur og kennara og fengum að skoða aðstæður. Nemendur voru búnir að undirbúa kynningu fyrir okkur á íslensku um starf móttökudeildarinnar sem var mjög upplýsandi. Að auki tóku nemendur í 9. bekk viðtöl bæði við nokkra krakka úr móttökudeildinni ... [ nánar ]Jólaskreyttur skólinn
Í morgun var kveikt á fyrsta aðventukertinu okkar í morgunsöng í Sjálandsskóla. Þessa vikuna verður skólinn færður í jólabúning þar sem nemendur hengja upp jólaskraut og kveikt verður á jólaljósum víða um skólann. Í desember er alltaf nóg um að vera, kveikt verður á aðventukerti á hverjum mánudagsmorgni, ýmis atriðið frá nemendum verða í morgunsöng, jólaföndur, jólaskemmtun, kirkjuferð o.fl.... [ nánar ]Slökkviliðið heimsótti 3.-4.bekk
Í dag kom slökkviliðið að heimsækja 3.bekk og fræddi nemendur um eldvarnir og viðbrögð við eldsvoða. Nemendur fengu síðan að skoða bæði sjúkra- og slökkviliðsbílinn. Myndir frá heimsókninni má sjá á myndasíðu 3.-4.bekkjar ... [ nánar ]Lög frá 7.bekk
Nemendur í 7. bekk tóku nýlega upp lagið Manamana sem þekktast er í fluttningi prúðuleikaranna. Lagið var æft í tengslum við kennslu um swing taktinn og spuna æfingar. Nemendur völdu sér hljóðfæri sem þeir léku svo á í upptökunni en einnig eru tveir úr hverjum hópi sem spila sóló eða spuna um miðbik lagsins.... [ nánar ]1.-2.bekkur í safnaferð
Í síðustu viku fóru krakkarnir í 1. Og 2.bekk í heimsókn á Hönnunarsafn Íslands og á Bókasafn Garðabæjar. Pamela De Sensi og Hjörtur Hjartarson tóku á móti krökkunum á Hönnunarsafninu og kenndu þeim að búa til margskonar hljóðfæri. Hljóðfærin verða geymd í skólanum og verða notuð á listadögum Garðabæjar sem verða síðar. Á bókasafninu tók Rósa bókasafnsfræðingur ... [ nánar ]Leiklistarhópur 5.-6.bekkjar
Í morgun sýndi leiklistarhópur 5.-6.bekkjar leikrit um Óðinn og bræður hans. Þetta var annar hluti leikritsins, framhald af sýningu sem haldin var í október. Margrét Helgadóttir kennari í 5.-6.bekk hefur séð um leiklistarhópana í 5.-6.bekk og það er gaman að fylgjast með þessum skemmtilegu krökkum stíga á svið og láta ljós sitt skína. ... [ nánar ]Munum eftir endurskinsmerkjum
Nú í svartasta skammdeginu er mikilvægt að öryggisbúnaður nemenda sé í lagi. Við viljum minna foreldra á að fara yfir endurskinsmerki á yfirhöfnum og töskum barna ykkar. Þeir nemendur sem eru á hjóli verða að vera með ljós á hjólinu. ... [ nánar ]Hattadagur í Sjálandsskóla
Í Sjálandsskóla er ýmislegt gert til að brjóta upp skólastarfið. Tyllidaganefnd sér um að skipuleggja hinar ýmsu uppákomur og í dag var svokallaður hattadagur. Þá komu nemendur og starfsfólk með alls konar hatta og höfuðföt sem settu svip sinn á skólastarfið í dag. ... [ nánar ]3.-4. bekkur heimsækir Reykjanesbæ
Í gær gerðu nemendur í 3. - 4.bekk sér glaðan dag í útikennslu og fóru með kennurum sínum í rútu til Reykjanesbæjar. Tilgangur ferðarinnar var að heimsækja Víkingaheima en nemendur hafa verið að lesa bókina Litlu landnemarnir í haust. Í leiðinni heimsóttu krakkarnir Skessuhelli og heilsuðu upp á skessuna sem býr þar. Nemendurnir voru stilltir og prúðir ... [ nánar ]Gleðidagur í lok vinaviku
Vinavikan í síðustu viku endaði á miklum gleðidegi á föstudeginum 11.nóvember. Þá voru tilkynnt úrslit í ljóða- og sögukeppninni og vinalagið var frumflutt í morgunsöng. Einnig voru tilkynnt úrslit í ljósmyndakeppninni sem haldin var í tilefni vinavikunnar. Nemendur komu með veitingar á hlaðborð og allir voru í sparifötunum og skemmtu sér vel þennan mikla gleðidag. ... [ nánar ]Þjóðlegt á degi íslenskrar tungu
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu í gær var bryddað uppá ýmsu þjóðlegu í Sjálandsskóla. Starfsfólk mætti með íslenskar skotthúfur og sumir mættu í þjóðbúning. Íslenskir höfundar lásu upp úr verkum sínum, Gunnar Helgason las úr bók sinni Víti í Vestmannaeyjum. Í unglingadeild var hefðbundið starf brotið upp, þar sem nemendur spiluðu borðspil sem reyndu á kunnáttu í íslensku... [ nánar ]Hljómsveitin Dikta í morgunsöng
Á morgun, þriðjudaginn 15.nóvember, verður hljómsveitin Dikta í morgunsöng og mun spila fyrir nemendur.... [ nánar ]Sjálandsskóli fékk íslensku menntaverðlaunin
Forseti Íslands afhenti í gærkvöldi, miðvikudaginn 9. nóvember 2011, Íslensku menntaverðlaunin fyrir árið 2011. Verðlaunin voru afhent við fjölmenna athöfn í Sjálandsskóla og hlaut skólinn verðlaun fyrir metnaðarfullt starf frá stofnum skólans. Við erum afar ánægð með þessa viðurkenningu og verður hún okkur hvatning til frekari uppbyggingar og nýsköpunar í framtíðinni... [ nánar ]Fyrirlestur um einelti
Í dag fengu allir nemendur skólans fyrirlestur frá Jerico samtökunum um einelti. Elísabet Stefánsdóttir þolandi eineltis sagði frá reynslu sinni og ræddi um afleiðingar eineltis. Í síðustu viku fengu starfsmenn skólans sambærilegan fyrirlestur og annað kvöld (fimmtudag) verður haldinn fyrirlestur fyrir foreldra í sal skólans kl.20.00... [ nánar ]Kynningar hjá 7.bekk
Nemendur 7. bekkjar unnu einstaklingsverkefni útfrá áhugasviði sínu. Þeir völdu sjálfir umfjöllunarefnið, tóku viðtal við sérfræðing í tengslum við verkefnið. Þeir skrifuðu svo skýrslu og héldu að lokum fræðandi kynningar fyrir foreldra sína í skólanum. Kynningarnar voru mjög fjölbreyttar og vel undirbúnar og sömuleiðis afurðirnar sem nemendur skiluðu. ... [ nánar ]Vinavika í Sjálandsskóla
Þessa vikuna er vinavika í Sjálandsskóla. Af því tilefni verður margt um að vera í skólanum og hófst dagurinn á því að fulltrúar frá Umboðsmanni barna komu og fræddu nemendur og fóru í leiki með elstu bekkjunum. Margir hafa sent inn myndir í ljósmyndakeppninni þar sem þemað var ,,vinir" og verða myndirnar hengdar upp í vikunni. Úrslit í ljóða- og sögukeppninni verða kynnt í morgunsöng á föstudaginn, en þá verður gleðidagur þar sem allir mæta prúðbúnir með veitingar á hlaðborð. ... [ nánar ]Tónlist frá 5.-6.bekk
5. og 6. bekkur hefur undanfarið verið að spila og syngja afríska lagið Nanuma. Nemendur lærðu nokkra takta sem svo var blandað saman til að fá almennilegan afrískan takt. Hver nemendi fékk svo að velja sér hljóðfæri sem hann lék á í upptöku lagsins. Að lokum sungu nemendur svo lagið í mörgum röddum yfir eigið undirspil ... [ nánar ]Kór Sjálandsskóla í Hörpu
Kór Sjálandsskóla mun koma fram á afmælistónleikum Tónmenntakennarafélags Íslands föstudaginn 28. október klukkan 16:00. Allir eru velkomnir en miðasala er í Hörpu og kostar 1.500 kr. fyrir fullorðna en frítt fyrir 16 ára og yngri. ... [ nánar ]Tónlist frá 3.-4.bekk
Undanfarið hefur 3. og 4. bekkur verið að æfa lag frá Chile sem heitir Mi caballo. Krakkarnir bæði sungu og spiluðu lagið á hristur, stafi, málmspil og klukkuspil. Í viðlaginu eru sungin spænsku orðin "mi caballo" og "galopando va", takthljóðfæri taka hryn orðanna og spila hann áfram í laginu og þannig verður til skemmtileg takt blanda.... [ nánar ]Hljóðin koma frá 1.-2. bekk
1. og 2. bekkur hefur undanfarið verið að kanna hljóðheiminn í tónmennt og þá sérstaklega vatnshljóð. Það er gert í tengslum við Comeniusar verkefnið sem krakkarnir og kennarar þeirra taka þátt í þar sem fjallað er um vatnið á marga vegu. Krakkarnir í 1. og 2. bekk sungu lagið ... [ nánar ]Starfsdagur og foreldraviðtöl í næstu viku
Á mánudag (24.okt.) er starfsdagur í Sjálandsskóla og á þriðjudag (25.okt.) eru foreldraviðtöl. Þessa daga er frí hjá nemendum en Sælukot er opið fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.... [ nánar ]Rýmingaræfing
Í gær var haldin rýmingaræfing í Sjálandsskóla þar sem æfð voru viðbrögð við eldsvoða. Æfinging gekk vel og voru nemendur og starfsfólk fljót að rýma skólann þegar viðvörunarbjallan fór í gang. Safnast var saman út í skólavelli þar sem umsjónarkennarar fóru yfir nafnalista hjá sínum bekk og gengið var úr skugga um að allir hefðu yfirgefið skólabygginguna. Rýmingaráætlun skólans má finna á vefsíðunni... [ nánar ]Evrópuþema hjá 7.bekk
Evrópuþema 7. bekkjar lauk í dag, 14. október með kynningu fyrir 8. bekkinn. Kynningin hófst á því að kennarar sýndu myndskeið frá Grikklandi þar sem nemendur áttu að ímynda sér að þeir væru staddir þar á Evrópumóti í íþróttum. Nemendur komu svo fram í hópunum sínum og kynntu þau 7 Evrópulönd ... [ nánar ]Heimsókn í 365 miðla
7. bekknum var boðið í heimsókn í 365 miðla þriðjudaginn 11. október. Þar fræddust nemendur um ólíka fjölmiðla og heimsóttu bæði hljóðver FM957 og myndver fréttastofu Stöðvar 2. Nemendur hittu marga skemmtilega fjölmiðlamenn... [ nánar ]Óðinn og bræður hans
Leiklistarhópurinn í 5/6 bekk var að ljúka leiklistarnámskeið sínu og gerðu þau það með pompi og prakt með leiksýningu í morgunsöng. Þau höfðu verið að fræðast um Óðinn og bræður hans og hvernig þeir sáu heiminn. Hópurinn bjó til leikmynd og búninga og tókst verkið mjög vel enda hæfileikaríkur hópur... [ nánar ]5.-6.bekkur á kajak
Í dag fóru nemendur í 5.-6.bekk á kajak í útikennslunni. Allir sem vildu fengu að sigla á kajak meðfram ströndinni við skólann undir leiðsögn Helga Grímssonar. Einnig gátu nemendur skoðað sjávarlífverur og leikið sér í fjörunni. Siglingin gekk vel, en einn nemandi hvoldi bátnum sínum og datt í sjóinn... [ nánar ]Forvarnardagurinn í dag
Í dag er fimmta árið sem Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands. Dagurinn er haldinn í samvinnu við ýmsa aðila sem koma, með einum eða öðrum hætti, að málum unglinga. Í dag fór fram dagskrá í 9. bekk þar sem við fengum Skátahöfðingja Íslands Braga Björnsson í heimsókn ... [ nánar ]Aðalfundur foreldrafélagsins
Aðalfundur foreldrafélags Sjálandsskóla verður haldinn þriðjudaginn 11.október kl.20.00 í Sjálandsskóla. Á fundinum verður boðið upp á vöfflur og kaffi/te. Foreldrar eru hvattir til að mæta og taka þátt í starfi foreldrafélagsins ... [ nánar ]9.bekkur á Úlfljótsvatni
Það voru hressir krakkar sem fóru í haustferð á Úlfljótsvatn nú á dögunum. Veðrið lék reyndar ekki við okkur en við höfðum að leiðarljósi þau orð að það sé enginn verri þó hann vökni. Hópurinn fór í gönguferð og í klifurturninn, prófaði vatnasafari og borðaði góðan mat... [ nánar ]Sjálandsskóli er heilsueflandi grunnskóli
Miðvikudaginn 28. september hóf Sjálandsskóli fyrstur grunnskóla í Garðabæ formlega þátttöku í þróunarverkefninu heilsueflandi grunnskóli. Markmið verkefnisins felur í sér að efla heilbrigðisvitund grunnskólabarna í víðum skilningi þess orðs. Í heilsueflandi skólum fer fram skólastarf í anda heilsueflingar þar sem markvisst er unnið að því að efla og stuðla að velferð og góðri heilsu nemenda og starfsfólks. Innleiðing verkefnisins tekur um 4 ár og mun áherslan verða fyrsta árið á nemendur, hreyfingu og öryggi.... [ nánar ]Íþróttadagurinn
Í dag tóku allir nemendur þátt í íþróttadegi Sjálandsskóla. Fyrir hádegi var nemendum skipt í fjóra aldursblandaða hópa í 1.-10.bekk. Nokkrar stöðvar voru settar upp í nágrenni skólans og í íþróttasalnum. Þar gátu nemendur farið í alls konar leiki og íþróttir, s.s. brennó, kubb, bandý, borðtennis, blak, stoppdans, reipitog, snú snú og margt fleira. Eftir hádegi fór 1.-7.bekkur í gönguferð út á Arnarnes... [ nánar ]10.bekkur í Vestmannaeyjum
Dagana 22. – 23. september fór 10.bekkur til Vestmannaeyja. Í Vestmannaeyjum skoðuðu nemendur Pompei Norðursins sem er uppgröftur á húsum sem urðu undir í eldgosinu í Vestmannaeyjum árið 1973. Nemendur prófuðu einnig að spranga og fóru í sund. Hópurinn gisti í félagsmiðstöðinni Rauðagerði ... [ nánar ]Stríðsminjar í Öskjuhlíð
Á haustdögum fór 9. bekkur ásamt kennurum í Öskjuhlíðina til að skoða gamlar stríðsminjar. Veðrið var yndislegt og stemmingin í hópnum góð. Meðal þess sem var skoðað var steypt skotbyrgi, loftvarnarbyrgi og einnig sáum við bragga frá tímum ... [ nánar ]Lummubakstur úti í náttúrunni
Lummubakstur úti í náttúrunni í tilefni af heimilisfræðiviku. Föstudaginn 23. september bakaði 1. – 2. bekkur lummur úti í náttúrunni. Bakað var á Murikkunni en það er sérstök panna sem hituð er með gasi. ... [ nánar ]1.-2.bekkur í rannsóknarferð
1. - 2. bekkur skellti sér í fjöruferð í Arnarnesvoginn í blíðskapar haustveðri fimmtudaginn 22. september. Verkefnið fólst í því að skoða lífríki fjörunnar í tengslum við Comeniusar -verkefnið Fjársjóðseyjan. En þar er áhersla lögð á nauðsyn vatns fyrir menn og dýr.... [ nánar ]7.bekkur í útieldun
7. bekkur fór í útieldun á fimmtudaginn eftir samræmda prófið í íslensku. Nemendur elduðu ljúffenga ítalska máltíð en hópurinn er einmitt í þema um Evrópu þessar vikurnar. Að því tilefni munu þeir kynnast matargerð frá nokkrum Evrópuþjóðum. Að þessu sinni var Ítalía fyrir valinu og elduðu nemendur "bruscettur" í forrétt með tómötum, basil og hvítlauk, pasta al pesto var í aðalrétt og svo var endað á því að grilla eftirrétt ... [ nánar ]5.-6.bekkur í myndmennt
Nemendur í 5.-6. bekk hafa verið að vinna teikningar af fiskum í myndmennt. Afraksturinn eru fallegir fiskar sem eru sambland af blýantsteikningu og litskrúðugu mynstri. Myndir má sjá á myndasíðunni. ... [ nánar ]Samræmd próf
Þessa vikuna eru samræmd próf haldin í 4., 7. og 10. bekk. Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag eru prófin í 10.bekk (íslenska, enska og stærðfræði). Á fimmtudag og föstudag taka 4. og 7. bekkingar samræmd próf í íslensku og stærðfræði. Nánari upplýsingar um samræmdu prófin má finna á vef Námsmatsstofnunar ... [ nánar ]Prjónastund hjá 3.-4. bekk
Í textílmennt eru nemendur í 3. – 4. bekk að byrja að læra að prjóna. Það getur stundum verið nokkuð snúið að halda rétt á prjónunum og garninu í fyrstu og því mikilvægt að allir fái góðan stuðning. Á mánudaginn buðum við foreldrum, ömmum og öfum til okkar í prjónastund, þar sem nemendur fitjuðu upp og byrjuðu að prjóna garðaprjón ... [ nánar ]Myndir úr gróðursetningarferð
Í dag fóru allir nemendur og starfsfólk Sjálandsskóla í gróðursetningarferð í Guðmundarlund. Veðurguðirnir voru okkur hliðhollir og áttum við frábæran dag í blíðskaparveðri við gróðursetninguna. Þá var farið í leiki, grillaðar pylsur og margt fleira skemmtilegt. ... [ nánar ]3.-4.bekkur í Hellisgerði
Í dag fóru nemendur í 3.-4. bekk í strætó í Hellisgerði í Hafnarfirði. Þar unnu þau smá verkefni í spæjarabók. Veðrið var dásamlegt og áttu nemendur og kennarar góðan dag saman í blíðunni. ... [ nánar ]Gróðursetningarferð í Guðmundarlund
Á morgun, þriðjudaginn 13.september, fara allir nemendur og starfsmenn skólans í gróðursetningarferð í Guðmundarlund. Nemendur mæti í skólann á venjulegum tíma, kl.8.15. Farið verður í rútum og komið til baka um kl.13.30-14.00. Í hádeginu verða grillaðar pylsur, þeir nemendur sem eru í mataráskrift fá pylsur en hirnir þurfa að koma með pylsur. Allir þurfa að koma með ávaxtanesti. Muna eftir að koma klædd eftir veðri.... [ nánar ]Berjamó og graffiti hjá 7.bekk
Nemendur í 7. bekk sömdu einkunnarorð fyrir bekkinn á föstudaginn. Þeir spreyjuðu þau svo á spjöld og skemmtu sér konunglega í góða veðrinu! Í útikennslu fór 7. bekkur í hjólaferð í Heiðmörk. Þar tíndu nemendur ber og fóru í hellaferð. Nemendur stóðu sig frábærlega í þessari ferð og enduðu svo daginn á því að baka berjakökur sem þeir borðuðu með bestu lyst. ... [ nánar ]Fjör í fiskabúrinu
Í frímínútum fer Sígú, húsvörðurinn okkar, stundum með krakkana niður í fjöru að veiða. Í dag bar vel í veiði og komu þau með fullt af alls konar fiskum og kröbbum ásamt stórum áli, sem Orri Hrafn veiddi í háf. Fiskarnir fara allir í stóra fiskabúrið okkar þar sem þeir vekja mikla athygli nemenda. ... [ nánar ]3.-4.bekkur í listgreinum
Fyrsta vikan fór vel af stað og nemendur komu endurnærðir í skólann eftir sumarfrí. Á myndasíðuna eru komnar myndir af 3.-4.bekk þegar þau voru í listgreinum í síðustu viku. Listgreinar eru kenndar í lotum þannig að sami hópur kemur 2-3 sinnum í viku í sömu list-og verkgrein í 8-10 vikur í senn.... [ nánar ]Kór Sjálandsskóla
Kór Sjálandsskóla er nú að hefja sitt fjórða starfsár. Kórinn er fyrir stráka og stelpur í 5. - 8. bekk. Í kórnum syngjum við fjölbreytt og skemmtileg lög og komum fram við ýmis tækifæri. Skráning í kórinn er hafin og fer hún fram hjá mér og Soffíu ritara. Kórgjald fyrir veturinn er það sama og undanfarin ár eða 5.000 kr. fyrir báðar annirnar og fá foreldrar upplýsingar um greiðslufyrirkomulag eftir skráningu.... [ nánar ]20. ágúst 2011
Fyrsta vikan í Sjálandsskóla
Á mánudaginn 22. ágúst eru foreldraviðtöl og hafa umsjónarkennarar boðað forráðamenn og nemendur til sín. Kennsla hefst skv. stundaskrá á þriðjudaginn 23. ágúst. Skóladagurinn hefst kl. 8:15 og lýkur kl. 14:05. Skólinn opnar hins vegar kl. 7:30.... [ nánar ]Skólamáltíðir í Sjálandsskóla
Á fundi bæjarráðs Garðabæjar þriðjudaginn 16. ágúst sl. var samþykkt að taka tilboði Skólamatar ehf. í framleiðslu og framreiðslu á mat í grunnskólum Garðabæjar. Frá því að tilboði er tekið þurfa skv. lögum að líða 10 dagar þar til hægt er að ganga frá samningi við fyrirtækið.... [ nánar ]15. ágúst 2011