Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Starf Klakans

Dagskrá félagsstarfs Klakans hefst í september með opnunarhátíð.
Skipulag dagskrár verður í höndum nemenda í félagsmálavali og starfsmanna Klakans. Kvöldstarfið er ætlað nemendum í 8. til 10. bekk.

Stundum flyst dagskrá úr húsi vegna ferða eða Samfésviðburða eða í annarri samvinnu við félagsmiðstöðvar og skóla. Húsinu er þá lokað á meðan.

Allir í unglingadeild eiga þess kost að bjóða sig fram til stjórnar nemendafélagsins. Kosningar fara fram á fyrstu vikum skólaársins.

Opnunartími
Klakinn er opinn öllum unglingum í 8.-10. bekk, mánudaga og miðvikudaga frá kl 19.30 – 22.00. Það er frjálst að koma og fara hvenær sem er á opnunartímanum.
Opið er fyrir miðstig frá 17:00 – 19:00 einu sinni í viku fyrir 7. bekk og á tveggja vikna fresti fyrir 5. og 6. bekk og er það auglýst á svæði þeirra og í tölvupósti til foreldra/forráðamanna.

Staðsetning Klakans
Klakinn er með aðstöðu inni á unglingasvæði skólans og skrifstofa forstöðumanns er inni á unglingadeildarsvæði.

Hlutverk félagsmiðstöðvarinnar er að styðja við unglinga í gegnum fjölbreytt tómstundastarf. Megin markmið starfsins er að veita þeim tækifæri til samveru og stunda heilbrigðar tómstundir undir leiðsögn reyndra tómstundaleiðbeinenda. Leiðarljós starfsins er að efla félagsfærni, sjálfsmynd og virkni unglinganna. Unnið er út frá hugmyndafræði barna- og unglingalýðræðis, hugmyndum og áhugasviði nemenda skólans. Leitað verður eftir röddum unglinganna hvað varðar starfsemi og þær uppákomur sem verða hverju sinni, innra starf og umgjörð.
Dæmi um viðburði á opnum kvöldum Klakans:
Spilakvöld · feluleikur um skólann · böll · gistigleði · lan · fífamót · varúlfur · ratleikur · átkeppni · lazertag · kökukeppni · íþróttamót · kósýkvöld · stelpu- og strákakvöld · bíókvöld · 8. bekkjarkvöld · þrautakvöld · slím og slef · vinakvöld · kaffihúsakvöld

Starfsfólk Klakans
Forstöðumaður Klakans er Tómas Þór Jacobsen og hefur starfað í Klakanum í sex ár. Starf forstöðumanns felst m.a. í því að halda utan um og bera ábyrgð á allri starfsemi félagsmiðstöðvarinnar, félagsmálaval, stjórn nemendafélags skólans og aðstoða nemendur við undirbúning starfsins. Einnig tekur forstöðumaður að sér verkefni innan skólans eftir þörfum s.s. hópastarf og hópefli. Forstöðumaður heldur utan um og skipuleggur forvarnarmál unglingadeildar ásamt námsráðgjafa. Forstöðumaður tekur að jafnaði þátt í haust- , vetrar og vorferðum 8., 9. og 10. bekkjar. Fjórir aðrir starfsmenn eru í Klakanum en þau eru Agnes Ásmundsdótir, Alexander Alexandersson, Íris Ólafsdóttir og Lea Björk Auðunsdóttir.

Félagsmiðstöðin Klakinn er með virkt instagram þar sem upplýsingar um dagskrá og annað kemur fram; klakinnfelo

Ef einhverjar spurningar vakna eða ef þið viljið koma með ábendingar ekki hika við að hafa samband við starfsmenn í síma Klakans 8464534

English
Hafðu samband