Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Í vor sömdu nemendur í 3. og 4. bekk tvö lög við ljóð Jóns Trausta, Íslandsvísur, í tengslum við Íslandsþema. Nemendur völdu sér hljóðfæri til að leika lagið og útsettu svo ásamt kennara lögin, æfðu og tóku þau upp. Í innilegunni komu hóparnir svo í tónmenntastofuna og tóku upp sönginn yfir eigið undirspil.

Íslandsvísur A

Íslandsvísur B

Undanfarið hefur 3. og 4. bekkur verið að æfa lag frá Chile sem heitir Mi caballo. Krakkarnir bæði sungu og spiluðu lagið á hristur, stafi, málmspil og klukkuspil. Í viðlaginu eru sungin spænsku orðin "mi caballo" og "galopando va" takthljóðfæri taka hryn orðanna og spila hann áfram í laginu og þannig verður til skemmtileg takt blanda.

Mi caballo (hópur A)

Mi caballo (hópur B)

 

English
Hafðu samband