Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öryggismyndavélar í Sjálandsskóla

Skólinn er vaktaður með öryggismyndavélum sem eru staðsettar utanhúss og innanhúss við innganga skólans og á opnum göngum innan skólans í almannarými. Tilgangur með rafrænni vöktunar á skólalóðinni og í skólabyggingunni er í þágu öryggis, til að varna því að eigur og verðmæti séu skemmdar eða þeim stolið og að farið sé um byggingar í leyfisleysi.

Heimild til skoðunar er aðgangsstýrð og er myndefni skoðað ef upp koma atvik sem varða eignavörslu eða öryggi einstaklinga, s.s. þjófnaður, skemmdarverk eða slys. Myndefni er varðveitt að hámarki í 90 daga og er því eytt að þeim tíma loknum.

Merkingar með viðvörunum um rafræna vöktun eru uppsettar á hinum vöktuðu svæðum.

Framkvæmd vöktunar er í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og reglur Garðabæjar um rafræna vöktun öryggismyndavéla.

Reglur Garðabæjar um rafræna vöktun má finna hér.

Upplýsingar um persónuvernd hjá Garðabæ má finna hér.

Einnig er bent á að almennar upplýsingar um rafræna vöktun ásamt leiðbeiningum er að finna í bæklingi á vef persónuverndar þar sem hægt er að fá frekari upplýsingar um viðfangsefnið: sem finna má hér

English
Hafðu samband