Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Foreldrar á vaktinni

03.12.2008
 Eins og flestir hafa orðið varir við tók stjórn foreldrafélagsins sig til og stóð vaktina við hringtorgið í síðustu viku og heldur því áfram enn um sinn. Tilgangurinn er að stýra umferð að og frá skólanum með öryggi barnanna að leiðarljósi. Morgnarnir eru farnir að ganga mjög vel en enn þarf að árétta að hringtorgið er ekki bílastæði!
Allir hafa fengið sendar leiðbeiningar varðandi aðkomu að skólanum þegar verið er að keyra eða sækja börnin.  Leiðbeiningar má einnig finna á heimasíðunni undir flipanum foreldrar, fréttir og tilkynningar.  
 
Til baka
English
Hafðu samband