Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Opið hús í Sjálansskóla

21.09.2010
Opið hús í Sjálansskóla

Fimmtudaginn 16.september var fyrsta opna húsið í Sjálandsskóla á vegum félagsmiðstöðvarinnar Garðalundar. Garðalundur kom færandi hendi. Nemendur settu saman tvö sófaborð sem prýðir unglingarýmið ásamt nýjum púðum og mottum. Flott framtak! Glaðir nemendur mættu á svæðið, farið var í leiki og horft á grínþætti. Opin hús verða framvegis á fimmtudögum í Sjálandsskóla.

Myndir á myndasíðu skólans

Til baka
English
Hafðu samband