Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

1.-2. bekkur í útieldun

05.10.2010
1.-2. bekkur í útieldun

Föstudaginn 1.október var lokadagur í heimilisviku hjá 1.og 2. bekk. Í útikennslu þann dag bökuðu börnin lummur, skreyttu borð og bjuggu sér til kórónur úr laufblöðum og greinum. Það rigndi mikið en börnin létu það ekki á sig fá. Þau báru útiborð með áföstum sætum á milli sín í undirgöngin hjá skólanum og þar töfruðu þau fram dýrindis veislu með heitum lummum og kakói. Þetta var frábær dagur.

Myndir má finna á myndasíðunni

Til baka
English
Hafðu samband