Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Pastagerð í vali í unglingadeild

03.03.2011
Pastagerð í vali í unglingadeild

Undanfarnar vikur hafa nokkrir nemendur í unglingadeild Sjálandsskóla verið í valáfanganum "ítölsk matargerð". Þar hefur margt verið brallað, s.s. pastaréttur, litlar calzone pizzur, foccacia og panaro brauð og ýmislegt fleira. Í síðasta tíma var búið til ferskt pasta og voru þá teknar nokkrar myndir. Í næstu viku er svo síðasti tíminn í þessu vali og þá verður gerð ítölsk eftirréttapizza, þ.e. súkkulaðipizza. Allar uppskriftir sem notaðar hafa verið í valáföngum í matreiðslu má finna á vef skólans.

Myndirnar má sjá á myndasíðu skólans

Til baka
English
Hafðu samband