Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

5.-7.bekkur heimsækir Latabæ

13.11.2013
5.-7.bekkur heimsækir Latabæ

Í morgun fóru allir nemendur í 5.-7.bekk í heimsókn í kvikmyndaver Latabæjar. Heimsóknin er endapunktur þemavinnunar um Benjamín dúfu og voru nemendur mjög ánægðir með heimsóknina. Í Latabæ fengum við að sjá búningana, förðunarherbergið, upptökusalinn, hljóðherbergið, klippiherbergið og fleira. Krakkarnir voru mjög áhugasamir og spenntir að sjá baksviðs hjá þessum fræga sjónvarpsþætti sem framleiddur er á Íslandi og sýndur út um allan heim á yfir 30 tungumálum.

Á myndasíðunni eru myndir frá heimsókninni.

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband