Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vorleikar- lista og hreyfistöðvar

05.05.2014
Vorleikar- lista og hreyfistöðvar

Í dag og á morgun eru vorleikar hjá okkur í Sjálandsskóla. Þá er nemendum skólans skipt í aldursblandaða hópa og hóparnir fara á milli lista-og hreyfistöðva og leysa ýmis verkefni. Stöðvarnar eru bæði úti og inni og dæmi um stöðvar er kaplakubbar, snú snú, teygjó, húllahringir, steinmálun, stinger, tálgun, vatnslitaverkefni, sápukúlur og margt fleira skemmtilegt. 

Á myndasíðunni má sjá myndir frá vorleikunum í dag

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband