Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kertagerð hjá Siggu og Bjössa

08.12.2014
Kertagerð hjá Siggu og Bjössa

Nemendur í 2. bekk fóru í heimsókn til Sigríðar Ólafsdóttir sérkennara við skólann á föstudaginn.  Hún og Björn eiginmaður hennar eru með litla kertagerð heima hjá sér.  Það hefur verið hefð síðustu ár að bjóða nemendum í heimsókn fyrir jólin.  Í þessari heimsókn fá börnin að leika sér með leikföng sem mörg hver eru frá því að börnin þeirra Siggu og Bjössa voru lítil. Bjössi kennir þeim að steypa kerti og svo er boðið uppá heimatilbúnar veitingar. Það var kátur hópur sem hittist heima hjá þeim hjónum eins og sjá má á myndunum sem eru komnar á myndasíðuna.

Til baka
English
Hafðu samband