Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öskudagur í Sjálandsskóla

22.02.2023
Öskudagur í Sjálandsskóla

Það var líf og fjör á í dag í Sjálandsskóla. Nemendum var skipt í hópa eftir árgöngum og fóru hóparnir á milli stöðva í skólanum. Þar var meðal annars hægt að slá köttinn úr tunnunni, fara í Tarzanleik, dansa Just Dance og taka þátt í alls konar þrautabrautum og leikjum. 

Eftir að hafa farið á allar stöðvar fóru nemendur á sitt heimasvæði þar sem þeir fengu nammipoka. 

Nemendur voru í skemmtilegum búningum eins og sjá má á myndasíðu skólans. 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband